Samheldni og gleði

Það var virkilega ánægjulegt að sjá samstöðuna á íþróttasvæði Völsungs í dag þegar sjálfboðaliðar tóku sig til og hreinsuðu völlinn svo bæði meistaraflokkur karla og kvenna í knattspyrnu gætu spilað fótbolta við aðkomulið í góðu en köldu veðri. Eins og menn vita þá hefur snjóað töluvert á Húsavík síðustu daga og reyndar vikur. Það var því töluvert verk að hreinsa völlinn en samstaðan sigrar alltaf, ekki spurning. Sjá myndir af frábæru fólki sem stóð vaktina í dag eins og reyndar oft áður. Áfram Völsungur!

Deila á