Það er ekki annað hægt en að hæla Borgarhólsskóla fyrir frábært og gefandi starf. Síðustu daga hafa staðið yfir leiksýningar á vegum skólans en nemendur í 7 bekk hafa verið að sýna leikritið „Dýrin í Hálsaskógi“ í leikstjórn Arnþórs Þórsteinssonar. Meðfylgjandi myndir voru teknar í morgun þegar sérsýning var í boði fyrir leikskólabörn á Grænuvöllum.

