Kjartan Páll Þórarinsson oddviti Samfylkingarinnar í Norðurþingi og Agnieszka Szczodrowska, sem skipar fjórða sætið á listanum fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, óskuðu eftir fundi í morgun með formanni Framsýnar um stöðuna í atvinnumálum á félagssvæðinu auk þess sem byggða- og velferðarmál voru einnig til umræðu. Vilji er til þess hjá forsvarsmönnum Samfylkingarinnar að eiga gott samstarf við Framsýn á komandi kjörtímabili um málefni íbúa í sveitarfélaginu. Sá vilji er gagnkvæmur enda afar mikilvægt að sveitarstjórnir á hverjum tíma og forsvarsmenn Framsýnar vinni vel saman enda um að ræða sameiginleg hagsmunamál.