Nú stendur yfir tveggja daga trúnaðarmannanámskeið á Húsavík á vegum stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum en námskeiðið hófst í morgun og klárast síðdegis á morgun. Að venju er frábær þátttaka á námskeiðinu en 23 trúnaðarmenn skráðu sig á námskeiðið. Smá forföll eru vegna veðurs. Á námskeiðinu er farið yfir störf trúnaðarmanna, samskipti á vinnustað, starfsemi lífeyrissjóða og stéttarfélaga. Áhugaverðir dagar framundan hjá okkar trúnaðaramönnum. Á eftir verður haldin smá móttaka til heiðurs þeim trúnaðarmönnum sem sækja námskeiðið áður en hópurinn borðar saman á Fosshótel Húsavík. Það er MFA sem skipuleggur námskeiðið í samstarfi við stéttarfélögin. Þar fer fremst í flokki, Sigurlaug Gröndal. Hér má sjá nokkrar myndir sem teknar voru á námskeiðinu í dag.






