Launa- og forsendunefnd kjarasamninga á almennum vinnumarkaði, sem skipuð er fulltrúum ASÍ og SA, hefur úrskurðað um kauptaxtaauka sem virkjast frá og með 1. apríl næstkomandi. Kauptaxtaaukinn felur í sér að kauptaxtar hækka um 0,06% og skýrist af því að launavísitala á almennum markaði hækkaði umfram taxtahækkanir viðmiðunartaxta á öðru ári stöðugleikasamningsins. Uppfærðar launatöflur verða birtar á heimasíðu Þingiðnar/Samiðnar á næstu dögum. Þessi frétt á við um félagsmenn Þingiðnar. https://samidn.is/2026/03/17/kauptaxtaauki-tekur-gildi-1-april/