Fundað með forstjóra Landsvirkjunar

Formaður Framsýnar, Aðalsteinn Árni, í umboði stjórnar félagsins gerði sér ferð til Reykjavíkur í gær til fundar við forstjóra Landsvirkjunar. Á fundinum fór Hörður Arnarson forstjóri yfir áform fyrirtækisins varðandi frekari orkuvinnslu á Þeistareykjum og Kröflu auk þess að fara yfir þá fjárfesta sem hafa verið í sambandi við Landsvirkjun varðandi frekari uppbyggingu á Bakka við Húsavík sem eru fjölmargir svo vitnað sé í viljayfirlýsingar sem gerðar hafa verið á síðustu vikum og mánuðum. Fleiri aðilar hafa jafnframt sýnt svæðinu áhuga þrátt fyrir að ganga ekki svo langt að ganga frá viljayfirlýsingu við hagaðila. Aðalsteinn Árni, ítrekaði mikilvægi þess að orkan á svæðinu verði notuð til uppbyggingar á atvinnulífinu í Þingeyjarsveit og Norðurþingi, það er í fullri sátt við íbúa og nærsamfélagið. Fundurinn var í alla staði mjög vinsamlegur og hafði Hörður fullan skilning á stöðunni á Bakka nú þegar starfsemi PCC liggur niðri. Vilji er til þess hjá báðum aðilum að vera í góðu sambandi er viðkemur uppbyggingu á orkufrekum iðnaði hér norðan heiða.

Deila á