Garðabær hefur til skoðunar að byggja upp veg við Þorrasali í Kópavogi sem er á landamerkjum sveitarfélaganna. Veginum sem nefnist Vorbraut er ætlað að tengja nýja byggð í Garðabæ við stofnbrautir í Kópavogi og Garðabæ. Það sem er algjörlega óásættanlegt er að veginum er ætlað að liggja fáeina metra frá fjölbýlishúsunum í Þorrasölum, það er við suðurhliðina þar sem í dag er golfvöllur. Húsfélögin í viðkomandi fjölbýlishúsum hafa mótmælt framkvæmdinni harðlega. Þar á meðal formaður Framsýnar, Aðalsteinn Árni, sem jafnframt er stjórnarformaður húsfélagsins í Þorrasölum 1-3 þar sem Framsýn og Þingiðn eiga sex orlofs- og sjúkraíbúðir. Hann ásamt öðrum stjórnarmanni í húsfélaginu gekk á fund bæjarstjóra Garðabæjar í gær þar sem málið var tekið upp til umræðu með kröfu um að sveitarfélagið falli frá þessari framkvæmd. Bæjarstjórinn tók við athugasemdunum og sagði þær fara í skoðun hjá sveitarfélaginu en Vorbraut væri ætlað að koma á næstu árum og tengja saman byggðir í Garðabæ og Kópavogsbæ. Vissulega yrði hlustað á athugasemdir íbúa á svæðinu og þeirra hagsmuni. Hér að neðan má lesa grein eftir íbúa í Þorrasölum, Ómar Kristinsson, sem skrifar um málið en mikil samstaða er meðal íbúa um að standa saman í málinu. https://www.visir.is/g/20262856356d/smalaholtskogur-natturuperla-eda-fornarkostur-skipulags-og-hver-a-ad-borga-
