Fréttabréf stéttarfélaganna er komið í prentun og er væntanlegt í verslanir á félagssvæðinu í byrjun næstu viku. Það verður líka aðgengilegt á Skrifstofu stéttarfélaganna. Að þessu sinni er það helgað orlofskostum sem verða í boði fyrir félagsmenn sumarið 2026 sem eru fjölmargir. Frestur til að sækja um orlofshús-íbúðir er til 10. apríl. Í kjölfarið verður húsunum úthlutað. Verð per viku í orlofshúsi er kr. 35.000,-. Hægt verður að nálgast umsóknar eyðublöð inn á heimasíðu stéttarfélaganna auk þess sem þau verða aðgengileg í Fréttabréfinu.