Iðnþing 2026 fór fram í Silfurbergi í Hörpu 5. mars. Samtök iðnaðarins stóðu að þinginu sem bar yfirskriftina „Finnum samhljómin“. Metskráning var á þingið en yfir 700 gestir sátu þingið, þar á meðal Aðalsteinn Árni Baldursson formaður Framsýnar. Honum var sérstaklega boðið að sitja þingið sem hann þáði enda mikill áhugamaður um uppbyggingu atvinnulífsins, ekki síst í Þingeyjarsýslum. Þingið fór vel fram og áhugaverðar umræður sköpuðust á þinginu eins og hér má sjá: https://www.si.is/frettasafn/bein-utsending-fra-idnthingi-2026. Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambands Íslands kom inn á vanda PCC á 1.37.05 mínútu fundarins.
Rauði þráðurinn á þinginu var þessi: Við byggjum öll okkar lífskjör á framleiðslu verðmæta. Aukið spennustig á alþjóðasviðinu og breytt aðgengi að erlendum mörkuðum kalla á sterka hagsmunagæslu Íslands. Óvissa og auknar þrengingar í efnahagsmálum hér á landi krefjast þess að heimatilbúnum hindrunum verði rutt úr vegi í þágu samfélagsins alls. Með því að stilla saman strengina getum við skapað samhljóm um nauðsynlegar umbætur.
Aðalsteinn Árni segist taka heilshugar undir áherslur þingsins, það sé ekki í boði að sitja hjá, allir beri ábyrgð. Mikilvægt sé að hagsmunaaðilar taki höndum saman um að efla Íslenkst atvinnulíf sem eigi í harðri samkeppni við erlend fyrirtæki og auknar þrengingar í efnahagsmálum. Það standi ekki á Framsýn að koma að þessari vinnu. Liður í því sé að funda með forsvarsmönnum Landsvirkjunnar á næstu dögum, en félagið hefur óskað eftir fundi með Landsvirkjun, til að ræða stöðu PCC á Bakka og þær hugmyndir sem eru til umræðu um frekari atvinnuuppbyggingu á Bakka. Afar mikilvægt sé að starfsemi PCC komist sem fyrst í eðlilegt ástand og áhugasömum fyrirtækjum, sem vilja hefja atvinnuuppbyggingu á Bakka, verði veitt brautargengi. Líkt og Samtök iðnaðarins, kallar Framsýn eftir samhljóm um frekari atvinnuuppbyggingu á Bakka. Orkan sem er til staðar í Þingeyjarsýslum verði notuð í heimabyggð.
