Stéttarfélögin innan SGS á Norðurlandi hafa gengið frá endurnýjuðum stofnanasamningi við HSN, þetta eru auk Framsýnar, Eining-Iðja, Aldan og Samstaða. Samningurinn var undirritaður í dag. Meðal þeirra atriða sem samið var um og voru ekki í fyrri samningi eru: Þrjú ný starfsheiti koma inn, Aðstoðarmaður almennt, Háskólanemi á heilbrigðissviði og Matartæknir II. Þá var samið um að ef starfsmenn færast til innan stofnunar í starfsheiti sem er ekki til staðar í nýja stofnanasamningnum geti þeir farið fram á að vera áfram í viðkomandi stéttarfélagi. Ber þá að varpa þeim í launatöfluna með svipuðum hætti og gengur og gerist í sambærilegum stofnanasamningum sem gilda fyrir önnur stéttarfélög á heilbrigðisstofnunum innan HSN. Ákvæðið á ekki við ef viðkomandi starfsfólk er með heilbrigðismenntun. Þá er gleðilegt til þess að vita að samningar tókust um að lyfta almennum störfum við ræstingu í eldhúsi og þvottahúsi upp um einn launaflokk, það er úr launaflokki 7 í 8. Fram að þessu hafa þessi störf verið lægst launuð. Hvað þetta ákvæði varðar tekur breytingin gildi 1. nóvember 2026. Að endingu má nefna að sérstakur launaflokkur sem starfsmenn hafa haft sem taka næturvaktir, heldur sér hjá núverandi starfsmönnum, en fellur niður hjá nýjum starfsmönnum sem ráðnir verða til starfa enda hefur í undangengnum kjarasamningum verið gengið frá verulegum breytingum er tengist greiðslum fyrir næturvaktir til hækkunar. HSN vildi fella ákvæðið um næturvaktirnar alfarið út en forsvarsmenn stéttarfélaganna mótmæltu því, niðurstaðan var að núverandi starfsmenn haldi ákvæðinu en það falli niður hjá þeim starfsmönnum sem ráðnir verða til stofnunarinnar í framtíðinni. Stofnanasamningurinn gildir afturvirkt, það er frá 1. október 2025.