Fresturinn til að gefa kost á sér í aðalstjórn Framsýnar rann út 1. mars sl. Ekki komu fram breytingartillögur frá almennum félagsmönnum en stjórn og trúnaðarráð Framsýnar hafði áður samþykkt tillögu Uppstillingarnefndar Framsýnar um félaga í trúnaðarstöður í félaginu fyrir næstkomandi kjörtímabil sem hefst frá og með næsta aðalfundi félagsins sem haldinn verður í maí 2026. Tillagan var auglýst á heimasíðu stéttarfélaganna og í Fréttabréfi stéttarfélaganna. Það verða því Aðalsteinn Árni Baldursson og Ósk Helgadóttir sem leiða félagið áfram en félagið er í dag eitt öflugasta stéttarfélag landsins og telur rúmlega þrjú þúsund félagsmenn. Kjörtímabil stjórnar eru tvö ár.