Samráðsfundur um stöðuna

Formaður Framsýnar fundaði í gær með forsvarsmönnum PCC BakkiSilicon um stöðuna. Því miður hafa verð fyrir kísilmálm haldið áfram að vera í sögulegu lágmarki en vænst er að verðin muni hækka í komandi framtíð. Í dag eru tæplega 20 starfsmenn við störf hjá fyrirtækinu á Bakka við Húsavík. Eigendur PCC BakkiSilcion eru að leitra alla leiða til að koma framleiðslunni í gang á nýjan leik og snúa dagsdagleg störf starfsmanna að því að viðhalda verksmiðjunni og þannig að hún sé í stakk búin til að hefja framleiðslu á ný þegar markaðsaðstæður leyfa. Framsýn og PCC BakkiSilicon leggja mikið upp úr góðu samstarfi enda miklir hagsmunir í húfi fyrir samfélagið að takist að endurreisa starfsemi fyrirtækisins á Bakka sem fyrst.

Deila á