Nú stendur yfir svokölluð kjördæmavika sem þýðir að þingmenn og ráðherrar leggja land undir fót og ferðast um landið til að hitta kjósendur og íbúa almennt. Hvað Húsavík varðar hafa fulltrúar frá Miðflokknum, Sjálfstæðisflokknum og Viðreisn verið áberandi á svæðinu síðustu daga. Allir flokkarnir hafa staðið fyrir opnum fundum sem hafa verið vel sóttir auk þess að heimsækja fyrirtæki, forsvarsmenn stéttarfélaga og sveitarfélaga. Að sjálfsögðu hafa fulltrúar Framsýnar verið duglegir við að sækja þessa fundi auk þess sem ráðherrar og þingmenn hafa gefið sér tíma til að heimsækja Skrifstofu stéttarfélaganna. Meðfylgjandi eru myndir sem teknar voru í gær þegar ráðherrar, þingmenn og aðstoðarmenn á vegum Viðreisnar litu við hjá formanni Framsýnar auk þess sem þau héldu opin fund í fundarsal stéttarfélaganna í kjölfarið sem var vel sóttur. Miklar og góðar umræður sköpuðust á fundinum um byggða- og atvinnumál, frumvörp sem eru til umræðu á þingi sem og Evrópusambandið.


