Þrek og tár, eitt af ástsælustu verkum Ólafs Hauks Símonarsonar verður á fjölunum hjá leikdeild Umf. Eflingar á Breiðumýri í vetur. Leikstjóri er María Pálsdóttir og tónlistarstjóri Pétur Ingólfsson. Leikaravalið eru að stærstum hluta heimamenn úr sveitinni með góðri aðstoð leikara og aðstoðarliðs frá Framhaldsskólanum á Laugum en i verkinu stíga á stokk 17 leikarar, 4 hljómsveitarmenn og annar eins fjöldi vinnur baksviðs við hin ýmsu verk sem fylgja uppsetningu sem þessari sem er vönduð í alla staði.
Félagsmenn stéttarfélaganna, Framsýnar, Þingiðnar og Starfsmannafélags Húsavíkur er velkomið að koma við á Skrifstofu stéttarfélaganna og fá afsláttarmiða á leiksýninguna, það er áður en þeir fara á sýninguna. Gegn því að framvísa afsláttarmiða frá stéttarfélögunum greiða félagsmenn kr. 3000,- fyrir miðann í stað þess að greiða kr. 4.500,-. Ekki er í boði að fá afsláttarkjör eftir á, það er eftir að félagsmenn hafa farið á sýninguna.
Rétt er að taka fram að allir félagsmenn eiga rétt á afsláttarmiða fyrir sig enda eru þeir skráðir á nafn viðkomandi félagsmanns. Það er greiðandi félagsmenn, félagsmenn sem eru hættir á vinnumarkaði vegna aldurs og þeir sem greiddu til stéttarfélaganna þegar þeir féllu út af vinnumarkaði vegna örorku.