Vinnueftirlitið vill vekja athygli atvinnurekanda á skyldu þeirra til að tilkynna rafrænt til Vinnueftirlitsins öll slys sem leiða til þess að starfsmaður verður óvinnufær í einn eða fleiri daga, umfram þann dag sem slysið varð.
Tilgangurinn er að halda skrá yfir orsakir og tíðni vinnuslysa svo efla megi forvarnarstarf á vinnustöðum á íslenskum vinnumarkaði og koma í veg fyrir að slys endurtaki sig. Til að skráin gefi sem réttasta mynd er mikilvægt að vita hvers eðlis slysin eru. Þess vegna er afar brýnt að atvinnurekendur sinni tilkynningarskyldu sinni.
Tilkynna skal um vinnuslys innan sjö daga. Gildir það einnig þó að endanlegar afleiðingar liggi ekki fyrir. Hægt er að uppfæra tilkynninguna komi frekari afleiðingar í ljós. Hafi láðst að tilkynna vinnuslys skal það gert eins fljótt og auðið er.
Vinnueftirlitið vill því hvetja þig til að tilkynna vinnuslys sem hafa orðið á vinnustað þínum þar sem skilvirkt forvarnarstarf getur margborgað sig; fyrir atvinnurekendur, starfsfólk og samfélagið allt.
Bent er á að rafræn skráning vinnuslysa kallar ekki sjálfkrafa á aðkomu Vinnueftirlitsins. Stofnunin metur í hverju tilfelli fyrir sig hvort það telji ástæðu til að gera sérstaka vettvangskönnun en ekki er alltaf þörf á slíkri rannsókn þegar til dæmis orsakir slyss liggja fyrir.
Nánari upplýsingar um tilkynningarferlið er að finna á vef Vinnueftirlitsins. Í ársskýrslu stofnunarinnar er jafnframt að finna ítarlega umfjöllun um vinnuslys greint niður á atvinnugreinar, kyn, orsakir og afleiðingar sem gagnlegt er að kynna sér.