Er starfsfólki skylt að fara til trúnaðarlæknis?

Lögfræðingar BSRB og Sameykis, Hrannar Már Gunnarsson og
Jenný Þórunn Stefánsdóttur, skrifa áhugaverða grein inn á heimasíðu BSRB um dóm
Landsréttar er tengist aðkomu trúnaðarlækna stofnana að veikindum starfsmanna.
Niðurstaðan er að starfsfólki ber ekki að mæta til trúnaðarlæknis nema í
undantekningartilvikum.  Í júní árið 2023 staðfesti Landsréttur þá túlkun
sem áður hafði komið fram í dómi Félagsdóms þar sem deilt var um hvort
starfsfólki bæri skylda til að mæta til trúnaðarlæknis í veikindum. Þar var
fjallað um ákvæði kjarasamnings sem snýr að trúnaðarlæknum en slík ákvæði eru
almennt sambærileg heilt yfir á íslenskum vinnumarkaði.

Hér má lesa greinina: https://www.bsrb.is/is/frettakerfi/er-starfsfolki-skylt-ad-fara-til-trunadarlaeknis

Deila á