Nemendur í 10. bekk Borgarhólsskóla á Húsavík komu í heimsókn í morgun til stéttarfélaganna. Á móti þeim tóku nafnarnir, Aðalsteinn Árni og Aðalsteinn Jóhannes, sem gerðu þeim grein fyrir starfsemi og hlutverki stéttarfélaga. Eftir fræðandi fyrirlestur var boðið upp á spennandi spurningakeppni sem gestirnir kunnu vel að meta en flestar spurningarnar tengdust fyrirlestrinum um starfsemi Framsýnar og aðildarfélaga Skrifstofu stéttarfélaganna. Óhætt er að segja að nemendurnir hafi staðið sig frábærlega vel en þau sögðust ánægð með heimsóknina og alla fræðsluna sem var í boði. Þökkuðu þau vel fyrir sig. Miðað við þessa frábæru unglinga sem komu í heimsókn í morgun er framtíðin björt á Húsavík. Takk kærlega fyrir okkur.







