Valdboð í stað samtals – hættulegur tíðarandi

Forseti Alþýðusambands Íslands, Finnbjörn A. Hermannsson, skrifar áhugaverða grein á visi.is. sem vert er að lesa.  Greinin er auk þess á heimasíðu sambandsins. Fleiri og fleiri eru hættir að skilja stefnu núverandi ríkistjórnar sem hefur undanfarið aukið álögur á landsmenn með tilheyrandi hækkun á verðbólgu svo ekki sé talað um frumvarp stjórnvalda um breytingar á atvinnuleysistryggingakerfinu sem nýlega var lagt fram á Alþingi. Frumvarpið felur í sér verulegar skerðingar á réttindum launafólks, eykur óöryggi og flytur ábyrgð og áhættu af samfélaginu yfir á einstaklingana sjálfa – án raunverulegs samráðs við verkalýðshreyfinguna.

Forseti Alþýðusambands Íslands, Finnbjörn A. Hermannsson, skrifar https://vinnan.is/valdbod-i-stad-samtals-haettulegur-tidarandi/

Deila á