Þann 19. desember 2025 tók gildi reglugerð um breytingar á fjárhæðum greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði og fjárhæðum fæðingarstyrks. Sjá frétt inn á vef Vinnumálastofnunnar.
Samkvæmt reglugerð nr. 1492/2025 eru hámarksfjárhæð og lágmarksgreiðslur úr Fæðingarorlofssjóði frá og með 1. janúar 2026:
- Hámarksfjárhæð skv. 1. mgr. 24. gr. laganna skal nema 900.000 kr. á mánuði.
- Lágmarksgreiðsla skv. 1. málsl. 3. mgr. 24. gr. laganna hækkar í 207.708 kr. á mánuði. (Foreldrar í 25-49% starfi)
- Lágmarksgreiðsla skv. 2. málsl. 3. mgr. 24. gr. laganna hækkar í 275.688 kr. á mánuði. (Foreldrar í 50-100% starfi)
Samkvæmt reglugerð nr. 1492/2025 eru greiðslur fæðingarstyrks frá og með 1. janúar 2026:
- Fæðingarstyrkur skv. 1. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna hækkar í 138.086 kr. á mánuði. (Foreldrar utan vinnumarkaðar eða í minna en 25% starfshlutfalli)
- Fæðingarstyrkur skv. 2. málsl. 1. mgr. 38. gr. laganna hækkar í 275.688 kr. á mánuði. (Foreldrar í fullu námi)
Tengill á reglugerð nr. 1492/2025; https://island.is/stjornartidindi/nr/c2a2c496-d30a-4244-a841-a98108e06d26
Ættleiðingarstyrkur
Frá 1. janúar 2026 verður ættleiðingarstyrkur 865.910 kr. skv. reglugerð nr. 1483/2025, https://island.is/stjornartidindi/nr/e69419e1-328d-4bff-a47f-7d76445ce8a9