Sumarferð í Flateyjardal

Stéttarfélögin í Þingeyjarsýslum  hafa mörg undanfarin ár staðið fyrir skemmtiferðum fyrir félagsmenn sína og hafa þær jafnan verið vinsælar og vel sóttar. Vegna fjölda áskorana hefur verið ákveðið að bjóða upp á sumarferð á Flateyjardal í ár, laugardaginn 9. ágúst. Farið verður frá Skrifstofu stéttarfélaganna kl. 09:00. Um er að ræða dagsferð undir leiðsögn Óskar Helgadóttur, sem er svæðinu þar ytra vel kunnug. Ferðin er opin félagsmönnum og gestum þeirra og ætti að vera við flestra hæfi.

Skráning er hafin í ferðina. Þátttökugjaldið er kr. 5.000,-. Hægt er að skrá sig í hana á Skrifstofu stéttarfélaganna eða með því að senda póst á netfangið kuti@framsyn.is. Skráning í ferðina stendur yfir til 15. júlí.

Stéttarfélögin

Deila á