Formaður Framsýnar, Aðalsteinn Árni, fundaði með forsvarsmönnum Icelandair síðasta mánudag í höfuðstöðvum flugfélagsins í Hafnarfirði. Hann hafði áður óskað eftir fundinum til að fara yfir möguleikana á því að Icelandair hefji áætlunarflug til Húsavíkur frá Reykjavík. Aðalsteinn Árni gerði grein fyrir málinu og mikilvægi þess að reglulegu áætlunarflugi sé haldið úti milli þessara landshluta. Bogi Nils Bogason, forstjóri flugfélagsins tók áherslum heimamanna vel en vilji er til þess hjá flugfélaginu að skoða málið frekar án skuldbindinga. Framsýn mun fylgja málinu eftir með samtölum við þingmenn, ráðherra og hagsmunaaðila í heimabyggð sem eru fjölmargir s.s. sveitarfélögin, HSN, ferðaþjónustuaðilar og atvinnurekendur í Þingeyjarsýslum. Að mati Framsýnar eru mikil samlegðaráhrif fólgin í því að Icelandair noti sínar minni flugvélar í áætlunarflug til Húsavíkur, Hafnar og Ísafjarðar.
