Fulltrúar frá Framsýn hafa verið í góðu sambandi við forsvarsmenn PCC á Bakka vegna stöðunnar sem komin er upp er varðar starfsemi fyrirtækisins. Fram hefur komið hjá forstjóra fyrirtækisins, Kára M. Guðmundssyni, að staðan sé mjög erfið og þung, markaðirnir séu ákaflega daprir og verðið mjög lágt og hafi farið lækkandi það sem af er þessu ári. Fyrirtækið framleiðir kísilmálm sem seldur er að mestu til útlanda.
Stjórn og trúnaðarráð Framsýnar hefur verið boðað saman til fundar þriðjudaginn 20. maí til að fara yfir stöðuna. Gestur fundarins verður, Kári Marís Guðmundsson, forstjóri PCC BakkaSilicon hf. á Húsavík.
Þá eru dæmi um að þingmenn Norðausturkjördæmis hafi óskað eftir fundi með forystumönnum Framsýnar til að fara yfir stöðuna, fundir þess efnis eru fyrirhugaðir í vikunni enda málið grafalvarlegt.