Guðný Ingibjörg Grímsdóttir var valin „Jólasveinn ársins 2024“ á lokafundi stjórnar og trúnaðarráðs Framsýnar á árinu. Trúnaðarmönnum á vinnustöðum, starfsmönnum stéttarfélaganna og stjórn Framsýnar-ung var einnig boðið að sitja fundinn sem fram fór föstudaginn 22. nóvember. Fundarmönnum bauðst að kjósa þann félagsmann sem þykir hafa skarað fram úr í starfi Framsýnar á árinu. Titilinn „Jólasveinn ársins 2024“ hlaut Guðný Ingibjörg Grímsdóttir fyrir hennar mikla og óeigingjarna starf í þágu félagsins, reyndar til margra ára. Henni hafa verið falið mörg trúnaðarstörf á vegum Framsýnar og er í dag í aðalstjórn félagsins auk þess sem hún hefur um árabil verið trúnaðarmaður starfsmanna ÚA fiskþurrkun á Laugum í Reykjadal. Framsýn óskar Guðnýju til hamingju með titilinn um leið og henni eru þökkuð frábær störf í þágu félagsins. Ásgerður Heba Aðalsteinsdóttir trúnaðarmaður starfsmanna í Borgarhólsskóla er með Guðnýju á myndinni en hún hélt utan um kosninguna með formanni félagsins.