Nokkrir lífeyrissjóðir starfsmanna sveitarfélaga hafa ákveðið að boða til sameiginlegs sjóðfélagafundar á Grand Hótel Reykjavík þann 13. mars. Meðal sjóðanna er Lífeyrissjóður starfsmanna Húsavíkurkaupstaðar. Sjá auglýsingu:
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga
Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar
Lífeyrissjóður starfsmanna Kópavogsbæjar
Lífeyrissjóður Akraneskaupstaðar
Lífeyrissjóður starfsmanna Húsavíkurkaupstaðar
Lífeyrissjóður Neskaupstaðar
boða til sameiginlegs sjóðfélagafundar á Grand Hótel Reykjavík við Sigtún þann 13. mars nk. kl. 17.00.
Farið verður yfir rekstur og afkomu Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga og lífeyrissjóða í hans rekstri í ljósi nýútkominnar skýrslu Landssamtaka lífeyrissjóða um úttekt á fjárfestingastefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins 2008.
Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta á fundinn.
Nánari upplýsingar og dagskrá verður birt síðar á heimasíðu Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga: www.lss.is og verður þar krækja þar sem hægt verður að fylgjast beint með fundinum.
Þann 13. mars, kl. 17.00 verður hægt að fylgjast með fundinum beint á slóðinni:
http://www.samband.is/um-okkur/sjodfelagafundur-lss/
Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga