Húsavík er á lista ferðavefsins Travel Lemming yfir bestu áfangastaðina til að heimsækja á næsta ári. 50 áfangastaðir eru á listanum og eru þeir jafn fjölbreyttir og þeir eru margir, en Húsavík er í 17. sæti listans.
Travel Lemming er vinsæll ferðavefur sem gefur út leiðarvísa um ólíka staði um heiminn. Vefurinn nýtur mikilla vinsælda og á ári hverju lesa um sex milljónir manna hann.
Seychelle Thomas, ferðablaðamaður Travel Lemming, mælir með því að ferðalangar skelli sér í hvalaskoðun á Húsavík og láti ekki lundana í Lundey framhjá sér far. Þá segir enn fremur að þrátt fyrir að fjöldi ferðamanna leggi leið sína til bæjarins til að fara í hvalaskoðun sé bærinn enn heillandi og haldi í rætur sínar sem sjávarþorp.
Þá er einnig mælt með því að fara í Sjóböðin, sem séu betri en Bláa lónið að því leyti að færri heimsæki böðin.
Efst á lista Travel Lemming er Lafayette í Louisiana-ríki í Bandaríkjunum. Í öðru sæti er Bútan og í því þriðja er Utila í Hondúras. (Heimild mbl-mynd Framsýn)