8. Þing ASÍ-UNG var haldið á Hotel Natura í dag. Framsýn átti tvo fulltrúa á þinginu, Sunnu Torfa og Guðmundu Steinu sem hlaut kosningu í stjórn.
ASÍ-UNG eru samtök innan verkalýðshreyfingarinnar sem sjá til þess að hagsmunamál ungs fólks á vinnumarkaði séu ávallt á dagskrá Alþýðusambandsins.
Yfirskrift þingsins að þessu sinni var „Fyrirmyndir komandi kynslóða – Er verkalýðshreyfingin aðlaðandi starfsvettvangur?“ Sérstök áhersla var á heilbrigð og uppbyggileg samskipti auk þess sem sérstaklega var fjallað um nýliðun innan hreyfingarinnar.
Á þinginu var ný stjórn ASÍ-UNG kosin, en hana skipa:
- Ásdís Helga Jóhannsdóttir, AFL
- Ástþór Jón Ragnheiðarson, Verkalýðsfélag Suðurlands
- Guðmunda Steina Jósefsdóttir, Framsýn
- Inga Fanney Rúnarsdóttir, Verkalýðsfélag Grindavíkur
- Jón Unnar Viktorsson, Verkalýðsfélag Grindavíkur
- Ólöf Helga Adolfsdóttir, Efling
- Sindri Már Smárason, AFL
- Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir, Verkalýðsfélag Vestfirðinga
- Þorvarður Bergmann Kjartansson, VR
Nýkjörin stjórn ASÍ-UNG
Í kjölfar þingsins hélt ný stjórn ASÍ-UNG fyrsta fund stjórnarinnar. Nýr formaður ASÍ-UNG var kosinn á fundinum, Ástþór Jón Ragnheiðarson, Verkalýðsfélagi Suðurlands og varaformaður ASÍ-UNG, Þorvarður Bergmann Kjartansson, VR.
Þorvarður Bergmann Kjartansson, varaformaður og Ástþór Jón Ragnheiðarson, formaður ASÍ-UNG.