Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður Framsóknar sem jafnframt er fyrsti þingmaður Norðausturkjördæmis ásamt Albertínu F. Elíasdóttir framkvæmdastjóra SSNE funduðu með formanni Framsýnar á dögunum. Ekki þarf að koma á óvart að byggða- og atvinnumál í Þingeyjarsýslum voru sérstaklega til umræðu. Þá var komið inn á komandi kjaraviðræður aðila vinnumarkaðarins. Fram kom í máli Ingibjargar að hún óskar eftir góðu samstarfi við Framsýn er viðkemur öllum framfaramálum á svæðinu. Það á reyndar líka við um SSNE.
![](https://framsyn.is/wp-content/uploads/2022/08/20220822_103530.jpg)