Búið er að draga í jólagetraun stéttarfélaganna. Maðurinn reyndist vera Ingólfur Ingólfsson úr Grundargili í Reykjadal:
„Til að hafa vinningsvon
verð ég víst að svara.
Þetta er Ingólfur Ingólfsson
Ingólfs bókbindara.“
Þessa vísu orti einn maður sem skilaði inn lausn við jólagetrauninni.
Vinningshafar:
Halla Loftsdóttir Álftanesi Aðaldal
Ósk Þorkelsdóttir Árholti Húsavík
Ingigerður Arnljótsdóttir Gautlöndum Mývatn
Elísabet Sigurðardóttir Baughól 50 Húsavík
Kristjana Kristjánsdóttir Hvítafell Reykjadal
Maðurinn ber nafnið Ingólfur Ingólfsson og býr í Grundargili í Reykjadal:
Þorsteinn Ragnarsson sem starfar hjá VÍS á Húsavík var fenginn til að draga heppna vinningshafa. Hér er hann ásamt Lindu Bald starfsmani stéttarfélaganna.