Desemberuppbót hjá verslunar- og skrifstofufólki er kr. kr. 73.600 fyrir árið 2014, það er miðað við fullt starf. Desemberuppbót innifelur orlof, er föst tala og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum. Áunna desemberuppbót skal gera upp samhliða starfslokum verði þau fyrir gjalddaga uppbótarinnar.
Hverjir eiga rétt á desemberuppbót?
Desemberuppbót greiðist eigi síðar en 15. desember ár hvert, miðað við starfshlutfall og starfstíma, öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum eða eru í starfi fyrstu viku í desember. Heimilt er með samkomulagi við starfsmann að uppgjörstímabil sé frá 1.desember til 30.nóvember ár hvert í stað almanaksárs.
Samkvæmt samningi við SA
Starfshlutfall miðast við fasta reglubundna vinnu, þó að hámarki 39,5 stundir hjá afgreiðslufólki og 37,5 stundir hjá skrifstofufólki á viku. Starfsfólk í hlutastarfi skal fá greitt hlutfallslega.
Uppgjörstímabil er almanaksárið. Fullt ársstarf er 45 unnar vikur eða meira fyrir utan orlof. Starfsfólk með skemmri starfstíma skal fá greitt hlutfallslega miðað við starfstíma sinn.
Ávinnsla desemberuppbótar í fæðingarorlofi
Eftir eins árs starf hjá sama vinnuveitanda teljast fjarvistir vegna lögbundins fæðingarorlofs til starfstíma við útreikning desemberuppbótar. Sama gildir ef kona þarf af öryggisástæðum að leggja niður störf á meðgöngutíma, sbr. reglugerð um ráðstafanir til þess að auka öryggi og heilbrigði á vinnustöðum fyrir konur sem eru þungaðar, hafa nýlega alið barn eða hafa barn á brjósti.
Frí gegn desemberuppbót
Heimilt er með samkomulagi milli starfsmanns og vinnuveitanda að fella niður eða lækka desemberuppbót og veita samsvarandi frí í staðinn, sem tekur mið af launum hvers og eins. Frí þetta skal veita í heilum eða hálfum dögum.
Með því að fara inn á heimasíðuna vr.is geta menn reiknað sjálfir út desemberuppbótina í reiknivél v/desemberuppbótar.