ASÍ hefur undanfarið birt auglýsingar þar sem bent er á ýmis atriði fjárlagafrumvarpsins þar sem farið er gróflega gegn hagsmunum launafólks. Sjá frekar:Þetta er ekki réttlátt!
ASÍ hefur undanfarið birt auglýsingar þar sem bent er á ýmis atriði fjárlagafrumvarpsins þar sem farið er gróflega gegn hagsmunum launafólks.Þetta er ekki réttlátt!Fjárlagafrumvarpið 2015 er aðför að launafólki á Íslandi.Fjöldi stéttarfélaga á landinu hefur mótmælt fjárlagafrumvarpinu harðlega í formi ályktana.Hækkun á matvælumHækkun á matarskatti er aðför að launafólki sem ver stórum hlutum tekna sinna til kaupa á brýnustu nauðsynjum.HeilbrigðismálMeð meiri kostnaðarþátttöku vegna lyfja og heilbrigðisþjónustu er gróflega vegið að hagsmunum sjúklinga og þeirra sem þurfa á þessari þjónustu að halda.MenntamálFyrirheit um eflingu starfs-, verk- og tæknimenntunar eru svikin og möguleikar fólks á vinnumarkaði með litla formlega menntun til að sækja sér nám eru skertir verulega.StarfsendurhæfingNiðurskurður til starfsendurhæfingar er aðför að fólki sem veikist eða slasast og þarf á starfsendurhæfingu að halda til að komast aftur út á vinnumarkaðinn.AtvinnuleysistryggingarStytting bótatímabils er fordæmalaus aðför að atvinnulausu fólki og mun auka enn á fátækt í landinu.HúsnæðismálEkki er gert ráð fyrir neinum auknum framlögum til að mæta miklum vanda í húsnæðismálum.Jafnræði í lífeyrismálumSkert framlög til jöfnunar örorkubyrða almennra lífeyrissjóða valda skertum lífeyrisgreiðslum til félagsmanna ASÍ.SkattalækkanirRíkisstjórnin hefur að undanförnu afsalað ríkissjóði tekjum fyrir tugi milljarða króna til að bæta hag þeirra ríkustu.