Brot við hópuppsagnir leiddu til skaðabóta

Landsréttur dæmdi nýlega atvinnurekanda skaðabótaskyldan fyrir að hafa ekki haft lögbundið samráð við fulltrúa starfsfólks eða tilkynnt Vinnumálastofnun um fyrirhugaðar uppsagnir áður en gripið var til þeirra. Dómurinn þykir marka mikilvæg tímamót í réttarvernd launafólks en með honum var staðfest að brot gegn samráðsskyldu samkvæmt lögum um hópuppsagnir geti leitt til skaðabótaábyrgðar atvinnurekanda. Sjá nánar inn á heimasíðu SGS.(sgs.is)

Deila á