Fjölnýtingahús í byggingu á Þeistareykjum

Á meðfylgjandi mynd sem tekin var 11. október má sjá nýja fjölnýtingarhúsið á Þeistareykjum sem er langt komið. Til stendur að klæða húsið í sama lit og önnur mannvirki á svæðinu. Síðan verður tönkum komið fyrir norðan við húsið og gengið endanlega frá lóðinni og aðkomuleið að húsinu. Í framhaldinu mun svo skýrast hvenær GeoSilica flytur inn með sína starfsemi. Frekari framkvæmdir eru einnig í gangi á svæðinu er tengist starfseminni á Þeistareykjum. Það er alltaf ánægjulegt þegar atvinnuuppbygging er í gangi enda eflir úr samfélagið í Þingeyjarsýslum.

Deila á