Barnaborg og Krílabær í Þingeyjarsveit auglýsa eftir starfsmanni

Barnaborg og Krílabær leita að áhugasömum starfsmanni í afleysingar með góðum möguleikum á föstu stöðuhlutfalli. Barnaborg og Krílabær eru hluti af Þingeyjarskóla sem er samrekinn leik- og grunnskóli. Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans. Barnaborg er til húsa í suðurenda Þingeyjarskóla í Aðaldal. Krílabær er staðsettur á Laugum í Reykjadal.

–              Um er að ræða aðstoð við umönnun barnanna undir leiðsögn leikskólakennara og leikskólastjóra

–              Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst

–              Húsnæði í boði í nágrenni skólans.

–              Umsóknarfrestur er til 2. nóvember 2026

Við leitum að starfsmanni sem:

–              Ber virðingu fyrir börnum og hefur áhuga á að starfa með þeim

–              Er mjög hæfur í mannlegum samskiptum

–              Er stundvís og samviskusamur

–              Hefur reynslu af umönnun barna á leikskólaaldri

–              Talar góða íslensku, samsvarandi þrepi C1.

Nánari upplýsingar um starfið og vinnufyrirkomlag gefur Nanna Marteinsdóttir leikskólastjóri í síma 464-3590 og 898-0790 eða í netfangið: nanna@thingeyjarskoli.is

Umsóknir skulu jafnframt sendar til leikskólastjóra á sama netfang. Gerð er krafa um hreint sakavottorð.

Deila á