Fimmtán aðildarfélög Alþýðusambands Íslands gerðu 1.209 launakröfur fyrir hönd félagsfólks síns árið 2025, samtals að fjárhæð um 1,4 milljarða króna. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu ASÍ, Brotastarfsemi á vinnumarkaði — Greining á launakröfum aðildarfélaga ASÍ 2025. Skýrslan er sú þriðja sem ASÍ gefur út um launaþjófnað, en sambærilegar úttektir komu út árin 2019 og 2023. Niðurstaðan er sú sama og áður: kjarasamningsbrot og launaþjófnaður eru viðvarandi vandamál og ekkert bendir til þess að dregið hafi úr alvarleika þeirra. Helstu niðurstöður má lesa inn á asi.is: https://asi.is/launakrofur-stettarfelaga-namu-14-milljordum-krona-a-sidasta-ari/