Aðalsteinn Árni Baldursson formaður Framsýnar var í viðtali á Rás 1 í gærmorgun á Morgunvaktinni þar sem staðan í kjaramálum var til umræðu sem og staðan í efnahagsmálum. Viðbrögð við viðtalinu hafa verið mjög góð ef marka má póstana og símtölin sem borist hafa Skrifstofu stéttarfélaganna. Hvað stöðuna varðar, þá verður kjarasamningum sagt upp þann 8. október komi stjórnvöld ekki að borðinu með einhverjum aðgerðum. Hægt er hlusta á viðtalið hér: https://www.ruv.is/utvarp/spila/morgunvaktin/23614/ave1da