Öryggismyndavélar komnar upp í Þorrasölum

Rétt er að geta þess að stjórn húsfélagsins í Þorrasölum í Kópavogi hefur samið við fyrirtæki um að koma upp öryggismyndavélum í Þorrasölum, það er í bílakjallaranum og við geymsluganga á jarðhæðinni. Stéttarfélögin eiga 7 íbúðir í fjölbýlishúsinu. Rétt er að vekja athygli þeirra sem gista á vegum stéttarfélaganna í Þorrasölum á vöktunarkerfinu. Unnið er að því að koma upp skiltum sem minna þá, sem leið eiga um Þorrasali, að svæðið sé vaktað. Þegar er búið að koma vélunum upp.

Deila á