Laugardaginn 11. júlí, opnaði nýtt bakarí á Húsavík í gömlu og virðulegu húsnæði sem á sér merkilega sögu. Um er að ræða verulega mögnuð tíðindi. Full ástæða er til að óska eigendum brauðgerðarhússins til hamingju með opnuninna um leið og skorað er á landsmenn alla að versla sem mest í þessu magnaða bakaríi. Að sjálfsögðu afhentu stéttarfélögin eigendum og starfsmönnum bakarísins blómvönd frá félögunum en mikið fjölmenni fagnaði opnuninni. Sjá myndir frá þessum frábæra degi.






