Glæsilegar eignir til sölu

Um þessar mundir er verið að ljúka byggingu á íbúðum í fjórbýli við Hraunholtið á Húsavík. Það er Ragnar Hjaltested verktaki sem fer fyrir byggingunni ásamt fjölskyldu. Um er að ræða glæsilegar íbúðir með annars vegar útigeymslum og hins vegar bílskúrum. Stærri íbúðirnar eru með bílskúrum og þær minni eru með rúmgóðum geymsluskúrum. Útsýnið úr íbúðunum af efri hæðinni er einstakt en stofugluggarnir snúa út á Skjálfanda, þvílík fegurð. Íbúðirnar eru frá því að vera um 115fm upp í um 155fm. Þegar er búið að selja eina íbúð. Vonandi seljast hinar íbúðirnar á komandi vikum og mánuðum. Verktakinn hefur til skoðunar að byggja fleiri sambærilegar íbúðir enda takist að selja þessar íbúðir.

Útsýnið maður lifandi úr stofuglugganum! Skjálfandi, Flatey og Kinnarfjöllin þar sem hæsti tindurinn er Kambsmýrarhnjúkur, sem er 1210 metra hár.
Íbúðirnar fjórar eru mjög vandaðar og verða klárar með lóð og öllu síðar í sumar. Þegar forsvarsmaður Framsýnar leit við í morgun voru iðnaðarmenn og almennir verkamenn við störf. Sem sagt, allt á fullu.

Deila á