Velheppnuð fræðsla fyrir nemendur

Framsýn var beðið um að koma í heimsókn í Vinnuskóla Þingeyjarsveitar í morgun með fræðslu um starfsemi stéttarfélaga og helstu ákvæði kjarasamninga. Að sjálfsögðu var orðið við þeirri beiðni. Kynningin sem fram fór í stjórnsýsluhúsi Þingeyjarsveitar, Þingey, gekk mjög vel og voru nemendur vinnuskólans áhugasamir um málefni fundarins.

Deila á