Á síðasta ári samþykkti Framsýn að minnast Kvennaársins 2025 með gjöf á fimm sætisbekkjum til samfélagsins sem komið verði fyrir í sjávarbyggðum á félagssvæðinu. Eru bekkirnir gefnir af virðingu við konur sem misst hafa ástvini sína í greipar Ægis. Það þótti vel við hæfi að fyrsti bekkurinn yrði vígður formlega á Kvennafrídaginn á Húsavík, 24. október 2025, en honum var valinn staður á Stangarbakkanum. Frá þeim tíma er þegar búið að koma fyrir bekkjum á Raufarhöfn, Kópaskeri og í Flatey á Skjálfanda. Í morgun var síðan komið að því að koma síðasta bekknum fyrir við Tungulendingu á Tjörnesi. Meðfylgjandi mynd var tekin þegar búið var að koma bekknum fyrir við eitt fallegasta bryggjustæði landsins í frábæru veðri.