Á síðasta aðalfundi Starfsmannafélags Húsavíkur sem fram fór í byrjun júní var samþykkt að styrkja leik- og grunnskóla í Norðurþingi með fjárframlögum til kaupa á búnaði fyrir nemendur. Félagið hefur þegar afhent Öxarfjarðarskóla 12 hljóðnema/míkrafón nælur. Tilgangurinn með gjöfinni er að efla enn frekar allt skólastarf í leik og grunnskóladeildum Öxarfjarðarskóla. Fjármagnið kemur úr Starfsmenntasjóði Starfsmannafélags Húsavíkur sem sveitarfélagið Norðurþing greiðir í af starfsmönnum sveitarfélagsins og er því skilgreint í verkefni er tengjast námi og þroska barna á grunn- og leikskólaaldri. Almennt er starfsmenntasjóðnum ætlað, samkvæmt starfsreglum sjóðsins, að styrkja félagsmenn Starfsmannafélags Húsavíkur til náms. Á síðasta ári voru greiddir samtals kr. 1.470.400,- í námsstyrki til 19 félagsmanna. Þar sem sjóðurinn stendur vel var ákveðið að styrkja góð verkefni á vegum leik- og grunnskóla í Norðurþingi. Á meðfylgjandi mynd er Hermína Hreiðarsdóttir formaður STH og Hrund Ásgeirsdóttir skólastjóri Öxarfjarðar sem þakkaði afar vel fyrir gjöfina sem kæmi að góðum notum í skólastarfinu. Afhendingin fór fram í fundarsal stéttarfélaganna.