Flyers airport hotel – nýr valkostur í Keflavík

Nýlega er kominn nýr valkostur í Ferðaávísuninni fyrir þá sem vilja gista í Keflavík eins og algengt er fyrir þá sem eru að ferðast til útlanda. Hann heitir Flyers airport hotel.

Flyers Airport Hotel (áður BB Guesthouse) er staðsett í Keflavík og býður upp á gistingu, bílageymslu, morgunverðarpakka og ferðir til og frá flugvelli

Tilboðin frá þeim hljóma svona

1. Ferðaávísun með inneignarauka

Þú kaupir ferðaávísun sem nýtist sem greiðsla í alla þjónustu hjá okkur (gistingu og fleira), en við bætum aukalega ofan á hana.

  • Verð: 30.000 kr.
  • Verðmæti: 35.000 kr.

2. Ferðapakki með sameiginlegu baðherbergi

Fullkominn pakki fyrir tvo fyrir flugið. Skildu bílinn eftir áhyggjulaust á meðan þú ert erlendis.

Innifalið:

  • Gisting fyrir tvo í tveggja manna herbergi (sameiginlegt baðherbergi).
  • Tvær morgunverðaröskjur.
  • Bílageymsla í allt að 14 daga.
  • Akstur á flugvöllinn og til baka aftur við heimkomu.

Verð

  • Fullt verð: 34.900 kr.
  • Sérkjör: 28.900 kr.

3. Ferðapakki með sérbaðherbergi

Fullkominn pakki fyrir tvo fyrir flugið. Skildu bílinn eftir áhyggjulaust á meðan þú ert erlendis.

Innifalið:

  • Gisting fyrir tvo í tveggja manna herbergi með sérbaðherbergi.
  • Tvær ljúffengar morgunverðaröskjur.
  • Örugg bílageymsla í allt að 14 daga.
  • Akstur á flugvöllinn og til baka aftur við heimkomu.

Verð

  • Fullt verð: 42.900 kr.
  • Sérkjör: 35.900 kr.
Deila á
Aðalsteinn Jóhannes Halldórsson Fréttir