Hófu sumarið með heimsókn til Framsýnar

Nemendur í Vinnuskóla Húsavíkur hófu sumarið á því að koma við hjá Framsýn í morgun kl. 08:30 ásamt flokkstjórum til að fræðast um vinnumarkaðinn og starfsemi stéttarfélaga. Virkilega vel staðið að málum hjá stjórnendum Vinnuskólans að byrja á því að bjóða nemendum upp á þessa mikilvægu fræðslu þegar þau eru að stiga sín fyrstu skref á vinnumarkaði. Eftir yfirferð forsvarsmanna Framsýnar gekk unga fólkið út til góðra verka, það er að fegra Húsavík með hirðingu og öðrum verkum sem miða að því að hafa bæinn okkar sem snyrtilegan í sumar. Nokkra vikna vinna er í boði fyrir ungmenni í Vinnuskólanum í sumar.

Deila á