Stéttarfélögin hafa ákveðið að færa hátíðarhöldin á Fosshótel Húsavík en þau hafa síðustu árin verið í Íþróttahúsinu á Húsavík. Hátíðarhöldin verða með breyttu sniði í ár og hefjast kl. 14:00. Boðið verður upp á kaffihlaðborð af bestu gerð frá hótelinu, hátíðarræðu dagsins, auk þess sem heimamenn í bland við góða gesti munu sjá um að skemmta gestum með mögnuðum tónlistaratriðum.
Dagskrá:
- Steingrímur Hallgrímsson spilar Internasjónalinn/alþjóðasöng verkalýðsins
- Hátíðarræða: Ósk Helgadóttir varaformaður Framsýnar stéttarfélags
- Hljómsveitin Ford Cortina: Flytjendur Unnsteinn Ingi Júlíusson, Daníel Borgþórsson og Edda Björg Sverrisdóttir
- Hljómsveitin Tjarnastrengir úr Stórutjarnaskóla flytur nokkur lög undir stjórn Mariku Alavere
- Sunnanvindur – eftirlætislög Íslendinga: Flytjendur Ásta Soffía Þorgeirsdóttir, Ragnheiður Gröndal og Grétar Örvarsson
Meðan á hátíðarhöldunum stendur verður gestum boðið upp á veglegt kaffihlaðboð í boði stéttarfélaganna.
Þingeyingar og landsmenn allir, tökum þátt í hátíðarhöldunum og drögum fána að hún á hátíðar- og baráttudegi verkafólks 1. maí 2023.
Framsýn, stéttarfélag – Starfsmannafélag Húsavíkur – Þingiðn, félag iðnaðarmanna
![](https://framsyn.is/wp-content/uploads/2023/04/20230417-113212v1-1024x614.jpg)
![](https://framsyn.is/wp-content/uploads/2023/04/Gretar_Asta_Ragnheidur-1-1024x895.jpeg)
![](https://framsyn.is/wp-content/uploads/2023/04/Ford_Cortina-1-1.jpg)
![](https://framsyn.is/wp-content/uploads/2023/04/hatid0517-200-1024x683.jpg)
![](https://framsyn.is/wp-content/uploads/2023/04/20220324_100815-2-966x1024.jpg)
![](https://framsyn.is/wp-content/uploads/2023/04/20230418_093718-1024x768.jpg)