Framsýn stéttarfélag hefur hafið undirbúning að mótun kröfugerðar fyrir komandi kjaraviðræður sem hefjast á næstu mánuðum við Samtök atvinnulífsins, ríkið og sveitarfélög.
Samninganefnd félagsins hefur samþykkt að leita til félagsmanna varðandi þau áhersluatriði sem þeir vilja fá inn í kröfugerðina. Skoðanir félagsmanna eru afar mikilvægar og því leggjum við mikla áherslu á að sem breiðust þátttaka náist til að raddir allra félagsmanna fái að heyrast í endanlegri kröfugerð sem verður aðgengileg á heimasíðu félagsins, framsyn.is, um leið og gengið hefur verið frá henni endanlega.
Áherslur félagsmanna sendist sem fyrst á netfang Samninganefndar félagsins, kuti@framsyn.is.
Þátttaka þín skiptir verulega miklu máli!
Samninganefnd Framsýnar