PCC BakkiSilicon hf. greiddi mest allra atvinnurekenda í iðgjöld til Framsýnar árið 2020 eða samtals um kr. 17,3 milljónir. Árið áður greiddi PCC sömuleiðis mest eða um 23,7 milljónir. Innifalið í upphæðinni eru félagsgjöld starfsmanna og lögbundin iðgjöld atvinnurekenda í sjóði Framsýnar. Atvinnuleysistryggingasjóður greiðir ekki launatengd gjöld í sjóði félagsins s.s. í orlofs- og sjúkrasjóð af atvinnuleitendum sem greiða félagsgjald til Framsýnar af atvinnuleysisbótum. Atvinnuleysistryggingasjóður er í öðru sæti á listanum yfir þá aðila sem hafa skilað félagsgjöldum til Framsýnar en kæmist ekki á listann ef lögbundin iðgjöld atvinnurekenda væru talin með eins og er í tilvikum þeirra fyrirtækja/sveitarfélaga/ríkisins sem eru á listanum.
Stærstu greiðendur iðgjalda árið 2020 eftir röð:
PCC BakkiSilicon hf.
Atvinnuleysistryggingasjóður
Sveitarfélagið Norðurþing
GPG. Seafood ehf.
Norðlenska matarborðið ehf.
Ríkissjóður Íslands
Hvammur, heimili aldraðra
Þingeyjarsveit
Íslandshótel hf.
Samherji