Í nýsamþykktum lögum um breytingar á tekjuskatti einstaklinga skulu þrepamörk tekjuskatts á árinu 2019 nú uppreiknuð í réttu hlutfalli við hækkun á vísitölu neysluverðs næstliðna tólf mánuði í staðinn fyrir breytingar á launavísitölu. Þrepamörk tekjuskatts verða samkvæmt því við 11.125.045 kr. árstekjur, eða 927.087 kr. á mánuði fyrir næsta ár, að því er segir í tilkynningunni.
Þar er einnig bent á að tryggingagjald lækkaði um 0,25 prósentustig um áramótin.
Hægt er að lesa sig til um skatthlutföll einstaklinga vegna ársins 2019, persónuafsláttur á vef ríkisskattstjóra