Fyrirtæki vilja semja – bíða ekki eftir SA

Nú um Hvítasunnuhelgina hafa fulltrúar Framsýnar átt í viðræðum við nokkur fyrirtæki á félagssvæðinu sem standa utan Samtaka atvinnulífsins um gerð kjarasamnings. Frumkvæðið hefur komið frá fyrirtækjunum. Framsýn hefur áður undirritað 23 kjarasamninga við fyrirtæki á svæðinu. Ekki er ólíklegt að skrifað verði undir nokkra samninga til viðbótar á allra næstu dögum enda hafa viðræðurnar við fyrirtækin gengið vel um Hvítasunnuna. Til viðbótar má geta þess að fyrirtæki sem er með um 150 starfsmenn í vinnu hafði samband við Skrifstofu stéttarfélaganna á Húsavík fyrir helgina og óskaði eftir viðræðum um gerð kjarasamnings fyrir starfsmenn fyrirtækisins. Fyrirtækið er með starfsstöðvar víða um land, þar á meðal á félagssvæði stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum. Fyrirtækið er með drög að kjarasamningi til skoðunar og mun svara því eftir helgina hvort það gengur að kröfum félagsins. Ljóst er að þolinmæði fyrirtækjanna er á þrotum gagnvart Samtökum atvinnulífsins enda hafa samtökin sýnt lítinn samningsvilja. Það á bæði við um fyrirtæki innan og utan SA. Næstu verkföll aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins bresta á næsta fimmtudag 28. maí verði ekki búið að semja fyrir þann tíma. Að sögn Aðalsteins Árna Baldurssonar formanns Framsýnar reiknar hann með undirskrift nokkurra samninga á allra næstu dögum í ljósi þess að fyrirtækin vilja komast hjá verkfalli og telja auk þess kröfur Starfsgreinasambandsins sanngjarnar og því aðgengilegar fyrir fyrirtækin.

Reikna má með því að undirskriftar penninn verði á lofti næstu daga þar sem viðræður Framsýnar við fyrirtæki í Þingeyjarsýslum hafa gengið afar vel síðustu daga.

Deila á