Hækkun til ríkisstarfsmanna innan Framsýnar

Í samkomulagi sem Starfsgreinasamband Íslands undirritaði við Fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs 1. apríl 2014 var sérstaklega samið um eingreiðslu til handa þeim þeim starfsmönnum sem heyra undir kjarasamning SGS við ríkið sem Framsýn á aðild að. Eingreiðslan nemur 20.000 kr. og átti að greiðast þann 1. apríl síðastliðin. Hún miðast við þá sem voru í fullu starfi í febrúar 2015, en þeir sem eru í hlutastarfi og/eða hafa starfað hluta úr mánuði eiga að fá hlutfallslega greiðslu. Skorað er á félagsmenn Framsýnar sem starfa hjá ríkinu að hafa samband við skrifstofu stéttarfélaganna á Húsavík ef greiðslan skilar sér ekki til þeirra.

Deila á