Stjórn Þingiðnar kom saman til að ræða málefni félagsins og stöðuna í kjaramálum. Ljóst er að væntingar iðnaðarmanna eru miklar en þeir hafa krafist að laun þeirra hækki verulega. Megin áherslurnar eru:
Endurskoðun núverandi launakerfa og byrjunarlaun iðnaðarmanna verði kr. 381.326 á mánuði.
Almenn hækkun launa verði 20%.
Verði samið til lengri tíma en eins árs verði laun verðtryggð.
Gert verði átak til að draga úr yfirvinnu og dagvinnulaun hækkuð svo þau dugi til framfærslu. Þessu markmiði verði náð m.a. með aukinni framleiðni og hagræðingu í fyrirtækjum svo ekki komi til raunverulegs kostnaðarauka hjá fyrirtækjum.
Heildarkostnaðaráhrifin af þessum hækkunum eru 23,2% og þar af rúm 3% vegna taxtatilfærslna.
Stjórn Þingiðnar fer yfir málin á fundi í vikunni.
Kröfur iðnaðarmanna eru verulega hófværar sé tekið mið af launum forystusveitar Samtaka atvinnulífsins sem talar um að svirúmið til launahækkana hjá iðnaðarmönnum sé um 3%. Laun Rannveigar Rist jafngilda launum 22 iðnaðarmanna á mánuði sé tekið mið af núverandi launatöflu Samiðnar. Er þetta eðlilegt NEI!!